Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 17. mars 2019 23:30
Arnar Helgi Magnússon
Fyrsti leikur Tottenham á nýjum leikvangi þann 3. apríl
Mynd: Tottenham
Tottenham hefur staðfest það að fyrsti leikur liðsins á nýjum leikvangi verði þann 3. apríl gegn Crystal Palace.

Stuðningsmenn og leikmenn liðsins eru eflaust mjög ánægðir með þessar fréttir en í fyrstu átti völlurinn að vera tilbúinn fyrir tímabilið.

Þrátt fyrir að það sé búið að staðfesta leikinn gegn Crystal Palace á nýja vellinum enn eftir að gera nokkrar öryggisprófanir á vellinum. Það verður gert á U18 ára leik gegn Southampton og 'goðsagnaleik' þann 30. mars.

Völlurinn tekur 62 þúsund manns í sæti og verður meðal þróuðustu leikvanga heims þegar kemur að tækni.

Miðasala fyrir leikinn gegn Crystal Palace hefst á morgun, mánudag.



Athugasemdir
banner
banner
banner