Liverpool hafði betur gegn Fulham þegar liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í dag. Liverpool hefur oft spilað betur en í dag en leiknum lauk með 1-2 sigri Liverpool.
Virgil Van Dijk og Alisson áttu stóran þátt í marki Fulham í leiknum. James Milner átti þá ömurlega hreinsun sem að skoppaði í átt að marki Liverpool.
Hollendingurinn hélt að Alisson ætlaði að koma út í boltann en Brasilíumaðurinn hikaði eitthvað í úthlaupinu sem að varð til þess að Ryan Babel komst að lokum í boltann og setti hann í autt markið.
„Við unnum leikinn og það er það sem að skiptir mestu máli. Mistök gerast í fótbolta, við lærum af þessu og höldum áfram," sagði Dijk eftir sigurinn í dag.
„Ég ætla ekki að afsaka eitt né neitt. Ég hefði átt að gera betur í markinu. Sem betur fer skoruðum við sigurmarkið og förum heim í toppsætinu."
Athugasemdir