Það er annar dagur í samkomubanni hér á Íslandi. Hér er komið að slúðurpakka dagsins. BBC tók saman.
Manchester United ætlar að gera öfluga tilraun til að fá franska miðvörðinn Samuel Umtiti (26) frá Barcelona í sumar. (Sport)
Chelsea mun setja það í forgang í sumar að reyna að fá Moussa Dembele (23), sóknarmann Lyon. (The Athletic)
Chelsea hefur haft samband við Porto vegna áhuga á brasilíska vinstri bakverðinum Alex Telles (27). (A Bola)
Chelsea og Manchester City fylgjast með argentínska sóknarmanninum Lautaro Martínez (22) hjá Inter. Barcelona hefur áhuga á leikmanninum. (Sport)
Arsenal og Tottenham hafa vilja fá króatíska miðvörðinn Dejan Lovren (30) sem spilar fyrir Liverpool. (Mirror)
Enski vinstri bakvörðurinn Leighton Baines (35) vill nýjan eins árs samning hjá Everton. Hann hefur verið orðaður við LA Galaxy. (The Athletic)
Everton er tilbúið að blanda sér í baráttu við Inter um ítalskaa miðjumanninn Lorenzo Pellegrini (23) hjá Roma. (Calciomercato)
Athugasemdir