mið 17. mars 2021 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Beckham vill fá Marcelo til Miami
Marcelo til Inter Miami?
Marcelo til Inter Miami?
Mynd: Getty Images
David Beckham, eigandi Inter Miami í MLS-deildinni, vill fá brasilíska vinstri bakvörðinn Marcelo til félagsins. Þetta kemur fram í France Football.

Marcelo verður 33 ára gamall í maí en samningur hans við Real Madrid rennur út sumarið 2022.

Hann hefur spilað með Madrídingum frá 2006 og unnið allt sem hægt er að vinna en er búinn að missa sæti sitt í liðinu til Ferland Mendy.

Marcelo hefur aðeins fengið tíu leiki á þessari leiktíð og lagt upp fjögur mörk.

Samkvæmt France Football vill David Beckham fá Marcelo til Inter Miami. Beckham ætlar að sannfæra Marcelo um að koma til félagsins í sumar.

Beckham hefur nú þegar fengið þá Blaise Matuidi og Gonzalo Higuain til félagsins en hann hefur þó í hyggju að fá stærri nöfn á borð við Lionel Messi, Edinson Cavani eða Luis Suarez í framtíðinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner