Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mið 17. mars 2021 11:42
Magnús Már Einarsson
Hólmfríður: Held áfram að njóta lífsins í sveitinni án legghlífa
Hólmfríður Magnúsdóttir.
Hólmfríður Magnúsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hólmfríður Magnúsdóttir tilkynnti í gær að hún hefði ákveðið að leggja skóna á hilluna 36 ára að aldri. Hólmfríður á tuttugu ára feril að baki í meistaraflokki.

Hólmfríður spilaði í heildina 186 leiki í deild- og bikar hér á landi og skoraði 134 mörk. Hún fór þrisvar á Evrópumót landsliða með íslenska kvennalandsliðinu og lék 113 landsleiki ásamt því að skora 37 mörk en síðasti leikur hennar var gegn Svíum í október á síðasta ári.

Í dag birti Hólmfríður pistil á Twitter þar sem hún þakkar fyrir sig.

Pistill Hólmfríðar
Eftir 20 ára feril í meistaraflokk hef ég tekið þá ákvörðun að taka af mér legghlífarnar og koma takkaskónum fyrir uppá hillu.
Ég var rétt að verða 16 ára þegar ég steig mín fyrstu skref í meistaraflokk með KR og spilaði m.a minn fyrsta bikarúrslitaleik í byrjunarliði.
Við tók langur og farsæll ferill sem ég er ofboðslega stolt af. Atvinnumennska í Danmörku, Svíþjóð, Bandaríkjunum og Noregi, ásamt góðum árum í efstu deild á Íslandi.

Ég er virkilega stolt af því að hafa spilað yfir 100 landsleiki fyrir Ísland á 17 árum og að hafa verið hluti af fyrsta A landsliðshóp Íslands sem vann sér sæti og tók þátt í lokamóti stórmóts.

Ég er innilega þakklát fyrir síðustu tvö árin mín í boltanum á Selfossi eftir barnsburð. Árin þar kveiktu neistann í gömlu og náði í bikarmeistaratitil, skora í úrslitaleiknum, vera kölluð aftur í landsliðið og enda ferilinn aftur í atvinnumennsku í Noregi með syni mínum en það er ekki sjálfsagður hlutur fyrir mæður að halda áfram knattspyrnuferli sínum eftir barnsburð.

Mig langar til að þakka öllum liðsfélögum í gegnum ferilinn, öllum þjálfurunum sem ég hef haft og ýttu mér áfram í að ná árangri, öllum fyrirmyndunum mínum og þá sérstaklega Olgu Færseth sem var eins og mamma mín á vellinum, KSÍ fyrir landsliðsárin og ómetanlega hjálp bæði innan og utanvallar, fyrir öll góðu árin í KR og að lokum Selfossi fyrir að hafa kveikt neistann eftir barnsburð.

Að lokum langar mig að þakka fjölskyldunni minni og vinum fyrir ómetanlegan stuðning í gegnum ferilinn og síðast en ekki síst stuðningsmönnum allra þeirra liða sem ég hef spilað fyrir.

Héðan í frá spila ég leikinn úr stúkunni og held áfram að njóta lífsins í sveitinni án legghlífa.

Takk fyrir mig
Hólmfríður Magnúsdóttir


Hér að neðan má sjá svipmyndir af ferlinum hjá Hólmfríði.
Athugasemdir
banner
banner