Stan Collymore, fyrrum leikmaður Liverpool, er ekki viss um að liðið geti barist við Manchester City um enska meistaratitilinn á næsta tímabili.
Collymore telur að Liverpool eigi ennþá talsvert í land og einungis þrír leikmenn liðsins myndu komast í byrjunarlið hjá Manchester City.
„Ég er ekki svo viss um að Liverpool verði aðalkeppinautur Manchester City í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili," sagði Collymore í pistli sínum í The Mirror.

„Þeir unnu þá kannski þrisvar á þessu tímabili og leikirnir í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar eru enn í fersku minni en að mínu mati eru einungis þrír leikmenn Liverpool sem myndu komast í byrjunarlið hjá City: Van Dijk, Mo Salah og Andy Robertson."
Athugasemdir