Rangers mun væntanlega setja tvo leikmenn liðsins í bann eftir að þeir hnakkrifust við knattspyrnustjóra félagsins, Graeme Murty.
Það var hiti eftir 4-0 tap gegn Celtic í undanúrslitum skoska bikarsins á sunnudag.
Það var hiti eftir 4-0 tap gegn Celtic í undanúrslitum skoska bikarsins á sunnudag.
Leiknennirnir eru Kenny Miller, 38 ára, og Lee Wallace, 30 ára, en sá síðarnefndi er fyrirliði liðsins.
Miller var ónotaður varamaður í umræddum leik en Wallace hefur verið fjarri góðu gamni síðan í september vegna meiðsla.
Þeir eru nú á fundi með forráðamönnum félagsins.
Athugasemdir