Football365 setti saman lista yfir tíu bestu bakverði tímabilsins í enska boltanum. Í síðustu viku voru besti markverðirnir valdir.
Sjá einnig:
Topp tíu - Bestu markverðir tímabilsins
Sjá einnig:
Topp tíu - Bestu markverðir tímabilsins
10) Ryan Bertrand (Southampton) - Ekki sýnt sínar bestu hliðar en samt sýnt stöðugleika á erfiðu tímabili hjá Southampton.
9) Trent Alexander-Arnold (Liverpool) - Ferskir vindar hafa fylgt þessum 19 ára strák og hann kemst á lista þrátt fyrir að hafa aðeins byrjað 15 deildarleiki.
8) Marcos Alonso (Chelsea) - Nútímabakvörður sem er óhræddur við að skjóta... og gerir það kannski of oft.
7) Antonio Valencia (Manchester United) - Ekki hans besta tímabil fyrir United en mikill stöðugleiki kemur honum á lista.
6) Stephen Ward (Burnley) - Hefur hjálpað Burnley á leið þeirra í Evrópukeppni. Hans hefur verið saknað þegar hann hefur ekki getað spilað.
5) Ashley Young (Manchester United) - Færsla hans úr vængmanni yfir í bakvörð hefur lukkast skrambi vel.
3) Andrew Robertson (Liverpool) - Hefur aðeins tekið þátt í 59% deildarleikja síns liðs en upprisa hans hefur verið mögnuð og hann leikið gríðarlega vel í vinstri bakverðinum.
2) Kieran Trippier (Tottenham) - Steig gríðarlega upp eftir að Kyle Walker fór til Manchester City. Pochettino hefur gert góða hluti í vinnu sinni með hann.
Athugasemdir