Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 17. apríl 2019 19:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Fletcher telur að tapið hjálpi Solskjær við að endurbyggja liðið
Mynd: Getty Images
Darren Fletcher fyrrum leikmaður Manchester United telur að 3-0 tap liðsins gegn Barcelona í gær í Meistaradeildinni muni hjálpa Solskjær við að endurbyggja liðið.

„Í gærkvöldi gat hann séð hvernig karakter býr í leikmönnum liðsins þegar þeir voru 3-0 undir. Hvaða leikmenn eru að leggja sig fram og hverjir eru búnir gefast upp," sagði Fletcher.

„Oft lærir maður meira af tapleikjum en sigurleikjum. Nú er þetta undir leikmönnum komið hver örlög þeirra verða, frammistaða leikmanna næstu vikur mun hafa mikið að segja um framtíð þeirra hjá félaginu."

Manchester United er í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti og á eftir að spila fimm deildarleiki á þessu tímabili. Næsti leikur liðsins er gegn Everton á sunnudaginn.

Athugasemdir
banner
banner