Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 17. apríl 2019 13:30
Elvar Geir Magnússon
Mbappe í skammarkrókinn
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Thomas Tuchel, þjálfari PSG, ætlar að henda Kylian Mbappe í skammarkrókinn.

Mbappe var óvæginn í ummælum um liðsfélaga sína eftir 5-1 skell gegn Lille síðasta sunnudag.

„Við munum verða meistarar en við getum ekki tapað svona. Það er ekki eðlilegt," sagði Mbappe eftir leikinn en hann var greinilega bálreiður eftir leik.

„Það skortir persónuleika í liðið. Við höfum spilað eins og nýliðar."

Tuchel telur að ummæli Mbappe hafi farið yfir strikið og ætlar að henda Mbappe í skammarkrókinn. Þessi magnaði leikmaður verður ekki með gegn Nantes í deildinni í kvöld.

PSG innsiglar Frakklandsmeistaratitilinn með sigri.
Athugasemdir
banner
banner
banner