Í kvöld klárast 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu.
Í gær komust Ajax og Barcelona áfram í undanúrslitin.
Liverpool er í góðum málum fyrir kvöldið eftir góðan 2-0 sigur gegn Porto í fyrri leik liðanna á Anfield. Liverpool og Porto mættust í 16-liða úrslitunum í fyrra og þá vann Liverpool 5-0 í Portúgal. Hvernig fer í kvöld.
Það er aðeins meiri spenna í hinni viðureign kvöldsins þar sem Englandsmeistarar Manchester City fá Tottenham í heimsókn. Fyrri leikurinn endaði með 1-0 sigri Tottenham og það er mikil spenna fyrir því hver fer áfram úr þessu einvígi.
Leikirnir hefjast báðir klukkan 19:00.
Leikir kvöldsins:
19:00 Porto - Liverpool (Stöð 2 Sport)
19:00 Manchester City - Tottenham (Stöð 2 Sport 2)
Athugasemdir