Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 17. apríl 2019 22:10
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Pochettino: Þetta var ótrúlegt
Mauricio Pochettino.
Mauricio Pochettino.
Mynd: Getty Images
Mauricio Pochettino og lærisveinar hans í Tottenham eru komnir áfram í undanúrslit Meistaradeildarinnar eftir að hafa haft betur í einvígi gegn Manchester City, samanlagt 4-4 en Spurs fer áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli.

„Þetta var algjörlega ótrúlegt hvernig þetta endaði. Ég er svo ánægður og stoltur. Þessir leikmenn eru hetjur, ég er svo ánægður fyrir þeirra hönd og stuðningsmannanna," sagði Pochettino.

Raheem Sterling skoraði fyrir Manchester City í uppbótartíma en markið var dæmt af vegna rangstæðu, í augnablik virtist City vera á leiðinni áfram en eins og fyrr segir þá var markið dæmt af.

„Á þessu augnabliki fóru margar hugsanir í gegnum hugann, tilfinningin var ömurleg og við á leið úr keppni en svo var markið dæmt af."

„Þetta er ástæðan fyrir því að maður elskar fótbolta, í dag sýndum við frábæran karakter í ótrúlegum leik," sagði Pochettino að lokum.

Tottenham mætir Ajax í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner