Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 17. apríl 2019 15:00
Elvar Geir Magnússon
Segist ekki sjá eftir því að hafa farið frá Ajax
Justin Kluivert.
Justin Kluivert.
Mynd: Getty Images
Justin Kluivert segist ekki sjá eftir því að hafa yfirgefið Ajax fyrir Roma síðasta sumar.

Kluivert, sem er 19 ára, kom í gegnum unglingastarf Ajax og horfði að sjálfsögðu á sigur liðsins gegn Juventus í gær.

Ajax er komið í undanúrslit Meistaradeildarinanr.

„Það er yndislegt að sjá frammistöðu Ajax í Meistaradeildinni," sagði Kluivert.

„Ég er virkilega ánægður fyrir hönd fyrrum liðsfélaga minna og ég óska þeim alls hins besta. Það er auðvelt að segja að ég hefði getað tekið þátt í þessu en ég fór ákveðna leið og sé ekki eftir neinu."

„Að búa einn í nýju landi og reyna mig í annarri deild hefur gert mig sterkari og kennt mér mikið. Ég er sterkari. Í ítölsku A-deildinni eru liðin vel undirbúin taktískt og allir leikir erfiðir. Hjá Ajax vorum við búnir að gera út um flesta okkar leiki í fyrri hálfleik," segir Kluivert.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner