Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 17. apríl 2019 21:25
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Son: Hef aldrei orðið vitni að öðru eins
Son Heung-min.
Son Heung-min.
Mynd: Getty Images
Það fór fram ótrúlegur leikur í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld þar sem Tottenham tryggði sæti sitt í undanúrslitum.

Samanlagt 4-4 gegn Manchester City en Spurs fer áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli.

Son Heung-min átti frábæran leik í liði Tottenham og hann skoraði fyrstu tvö mörk liðsins í 4-3 tapi í kvöld.

„Ég hef aldrei orðið vitni að öðru eins, ótrúlegur og mjög erfiður leikur, ég er mjög stoltur af liðinu."

„Stundum fer VAR í taugarnar á manni en í dag þakka ég fyrir að þessi tækni sé til staðar. Við börðumst saman og sýndum ótrúlegan karakter í 90. mínútur," sagði Son sem er á leið með Tottenham í undanúrslit Meistaradeildarinnar þar sem þeir mæta Ajax.
Athugasemdir
banner
banner
banner