Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 17. apríl 2019 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Valur býður árskort á alla leiki karla og kvenna á 12 þúsund
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur hefur hafið sölu á árskortum fyrir Íslandsmótið sem hefst á næstu dögum.

Keppni í Pepsi Max-deild karla hefst 26. apríl og keppni í Pepsi Max-deild kvenna hefst 2. maí. Valur þykir vera með sigurstranglegt lið í báðum deildum.

Valur sendi í gær frá sér tilkynningu þar sem segir að árskort hjá félaginu á alla heimaleiki liðsins í Pepsi Max-deild karla og Pepsi Max-deild kvenna séu komin í sölu.

Kortið kostar aðeins 12 þúsund krónur.

Valur hefur leik í Pepsi Max-deild karla gegn Víkingi R. þann 26. apríl og gegn Þór/KA í Pepsi Max-deild kvenna þann 3. maí. Stórleikur strax í fyrstu umferð.


Athugasemdir
banner
banner
banner