Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 17. apríl 2021 21:21
Victor Pálsson
Barcelona spænskur bikarmeistari - Messi skoraði tvö
Mynd: Getty Images
Athletic 0 - 4 Barcelona
0-1 Antoine Griezmann ('60 )
0-2 Frenkie de Jong ('63 )
0-3 Lionel Andres Messi ('68 )
0-4 Lionel Andres Messi ('72 )

Lionel Messi og félagar í Barcelona unnu sannfærandi sigur í úrslitum spænska bikarsins í kvöld.

Copa del Rey úrslitaleikurinn fór fram en Athletic Bilbao og Barcelona áttust við. Sigur þess síðarnefnda var aldrei í hættu.

Fyrri hálfleikurinn var í rólegri kantinum en engin mörk voru skoruð.

Barcelona tók öll völd á vellinum í þeim síðari og skoraði fjögur mörk og gerði Messi tvö þeirra.

Antoine Griezmann og Frenkie de Jong skoruðu fyrstu tvö mörk Börsunga áður en Messi bætti við tveimur í 4-0 sigri.

Þetta er fyrsti bikarsigur Barcelona í keppninni síðan 2018.
Athugasemdir
banner
banner
banner