Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   lau 17. apríl 2021 21:24
Victor Pálsson
Sjáðu stórkostlegt mark Messi í kvöld - Réðu ekkert við hann
Mynd: Getty Images
Lionel Messi skoraði stórkostlegt mark fyrir Barcelona í kvöld sem spilaði við Athletic Bilbao í spænska bikarnum.

Um var að ræða úrslitaleik keppninnar en Barcelona hafði betur sannfærandi með fjórum mörkum gegn engu.

Messi skoraði tvö síðustu mörk liðsins en hans fyrra mark var svo sannarlega af dýrari gerðinni.

Argentínumaðurinn fékk boltann á eigin vallarhelmingi og átti frábæran sprett að marki Athletic áður en hann skoraði.

Markið má sjá hér.


Athugasemdir
banner
banner