Arsene Wenger, fráfarandi stjóri Arsenal, segir að Mikel Arteta hafi alla þá kosti sem þarf til að taka við liðinu.
Hinn 36 ára gamli Arteta þykir líklegastur til að taka við Arsenal af Wenger.
Arteta spilaði 150 leiki með Arsenal frá 2011 til 2016 en hann er í dag aðstoðarstjóri Manchester City.
Hinn 36 ára gamli Arteta þykir líklegastur til að taka við Arsenal af Wenger.
Arteta spilaði 150 leiki með Arsenal frá 2011 til 2016 en hann er í dag aðstoðarstjóri Manchester City.
„Hann var leiðtogi sem leikmaður, hafði mikla ástríðu fyrir leiknum, hann þekkir félagið og hvað er mikilvægt fyrir félagið," sagði Wenger.
„Heilt yfir hefur hann hæfileikana sem þarf en ég vil ekki hafa opinberlega áhrif á valið."
Athugasemdir