Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 17. maí 2019 22:09
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
2. deild: Selfoss og KFG með sigra
Benedikt Daríus gekk til liðs við KFG fyrir þessa leiktíð. Í kvöld skoraði hann seinni tvö mörk KFG í sigri á Þrótturum.
Benedikt Daríus gekk til liðs við KFG fyrir þessa leiktíð. Í kvöld skoraði hann seinni tvö mörk KFG í sigri á Þrótturum.
Mynd: KSÍ
Tveir leikir fóru fram í 2. deild karla í kvöld. KFG tók á mótti Þrótti Vogum og ÍR fékk Selfoss í heimsókn.

Á Samsung vellinum í Garðabæ fór KFG vel af stað. Kristófer Konráðsson kom liðinu yfir á níundu mínútu og þannig var staðan í hálfleik. Í hálfleik kom Benedikt Daríus Garðarsson inn á. Hann átti heldur betur eftir að stimpla sig inn.

Á 70. mínútu kom Benedíkt KFG í 2-0 og á 88. mínútu bætti hann við þriðja marki KFG og öðru marki sínu. 3-0 urðu lokatölur fyrir KFG í Garðabænum. Annar sigur KFG í fyrstu þremur umferðunum staðreynd.

Á Hertz vellinum tók ÍR á móti Selfossi. Gestirnir komust yfir á áttundu mínútu leiksins, þar var á ferðinni Hrvoje Tokic. Gestirnir bættu svo við öðru marki á 32. mínútu þegar Kenan Turudija kom boltanum í netið.

Fleiri urðu mörkin ekki og Selfoss er eins og KFG komið með tvo sigra eftir fyrstu þrjár umferðirnar.


KFG 3-0 Þróttur V.
1-0 Kristófer Konráðsson ('9)
2-0 Benedikt Daríus Garðarsson ('70)
3-0 Benedikt Daríus Garðarsson ('88)

ÍR 0-2 Selfoss
0-1 Hrvoje Tokic ('8)
0-2 Kenan Turidija ('32)



Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner