Babel og Markovic á förum
Everton er samkvæmt heimildum Sky Sports News sagt hafa mikinn áhuga á Aleksandar Mitrovic, framherja Fulham.
Fulham vill ekki selja serbneska framherjann en Mitrovic vill spila aftur í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Fulham féll úr úrvalsdeildinni í vor.
Everton vill fá nýjan framherja í hópinn og Mitrovic er ofarlega á óskalista félagsins. Mitrovic kostaði Fulham 22 milljónir punda þegar félagið fékk hann frá Newcastle fyrir leiktíðina.
Mitrovic skoraði ellefu deildarmörk í 37 leikjum á leiktíðinni. Hann var á láni hjá Fulham seinni hluta síðustu leiktíðar og skoraði þá tólf mörk í sautján leikjum í Championship deildinni.
Everton hefur einnig áhuga á nýjum vængmanni, miðjumanni, miðverði, hægri bakverði og markverði til að veita Jordan Pickford samkeppni.

Fulham hefur þá staðfest að Ryan Babel og Lazar Markovic eru á förum frá félaginu en þeir komu til félagsins á lánssamningi í janúar.
Athugasemdir