Ólafsvíkingar og Njarðvík með sterka útisigra
Þrír leikir fóru fram í Inkasso deild karla í dag. Keflavík tók á móti Aftureldingu á Nettóvellinum.
Heimamenn leiddu með þremur mörkum gegn engu í hálfleik og gerði Adam Árni Róbertsson öll þrjú mörk Keflavíkur og var þar með kominn með þrennu í fyrri hálfleik.
Keflvíkingar bættu við tveimur mörkum í seinni hálfleik og kláruðu því leikinn með 5-0 sigri.
Í Breiðholti tók Leiknir á móti Njarðvík. Stefán Birgir hefur verið sjóðandi heitur hjá Njarðvík í upphafi leiktíðar og lagði upp fyrsta mark leiksins fyrir Toni Tipuric. Stefán var svo sjálfur á ferðinni tæpum tíu mínútum seinna þegar hann skoraði sjálfur með neglu upp í þaknetið.
Leiknir minnkaði muninn undir lok leiks þegar Sævar Atli fylgdi á eftir eiginn vítaspyrnu og skoraði. Leikni tókst ekki að bæta við marki og því 1-2 útisigur Njarðvíkur staðreynd.
Á Eimskipsvellinum tók Þróttur á móti Víkingum frá Ólafsvík. Ólsarar komust yfir strax á þriðju mínútu og leiddu 0-1 í hálfleik.
Í seinni hálfleik tókst heimamönnum að jafna en Ólsurum tókst að skora aftur og var þar á ferðinni Harley Willard.
Keflavík byrjar tímabilið á þremur sigrum í fyrstu þremur leikjunum og Ólafsvíkingar eru komnir með sjö stig.

Reiðhjólastrákur á fleygiferð, stelpa með hamborgara, gamall maður í göngutúr, stelpuhópur, hjólabrettastrákur. Brot af þeim sem fóru í gegnum boðvang Víkings Ó í leiknum við Þrótt í kvöld. Nema von að þeim sé skipað að setjast til að trufla ekki umferðina. #fotboltinet
— Hafliði Breiðfjörð (@haflidib) May 17, 2019
Keflavík byrjar tímabilið á þremur sigrum í fyrstu þremur leikjunum og Ólafsvíkingar eru komnir með sjö stig.
Keflavík 5 - 0 Afturelding
1-0 Adam Árni Róbertsson ('9)
2-0 Adam Árni Róbertsson ('32)
3-0 Adam Árni Róbertsson ('44)
4-0 Davíð Snær Jóhannsson ('49)
5-0 Rúnar Þór Sigurgeirsson ('58)
Lestu meira um leikinn hér.
Leiknir R. 1 - 2 Njarðvík
0-1 Toni Tipuric ('32)
0-2 Stefán Birgir Jóhannesson ('41)
0-2 Sævar Atli Magnússon ('89, misnotað víti)
1-2 Sævar Atli Magnússon ('89)
Lestu meira um leikinn hér.
Þróttur R. 1 - 2 Víkingur Ó.
0-1 Jacob Andersen ('3)
1-1 Birkir Þór Guðmundsson ('66)
1-2 Harley Willard ('77)
Lestu meira um leikinn hér.
Athugasemdir