Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 17. maí 2019 18:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sky: Real búið að ganga frá kaupunum á Jovic
Mynd: Getty Images
Samkvæmt heimildum Sky Sports hefur Real Madrid gengið frá kaupunum á Luka Jovic frá Eintracht Frankfurt.

Jovic kostar Real rúmar 52 milljónir punda, sléttar 60 milljónir evra. Jovic sem er serbneskur landsliðsmaður skrifar undir fimm ára samning við spænska risann og fær um 8,7 milljónir punda í árslaun.

Benfica, liðið sem Jovic var hjá áður en hann gekk í raðir Frankfurt, fær rúmar 10 milljónir punda af kaupverðinu.

Jovic hefur skorað sautján mörk í 31 leik í þýsku Bundesliga í vetur og skoraði tíu mörk í Evrópudeildinni.

Frankfurt mætir á morgun Bayern í lokaleik tímabilsins þar sem jafntefli dugir Bayern til þess að liðið verði Þýskalandsmeistari.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner