Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 17. maí 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Kenny Sansom á spítala - Ekki með veiruna
Mynd: Mirror
Hinn 61 árs gamli Kenny Sansom, goðsögn hjá Arsenal og enska landsliðinu, er á spítala þessa dagana vegna veikinda. Hann er ekki með kórónuveiruna.

Sansom hefur glímt við drykkju- og fjárhættuspilavandamál í nokkra áratugi og var heimilislaus um tíma.

Arsenal sendi kveðjur til Sansom og fjölskyldu hans sem stendur við hlið hans á þessum erfiðu tímum.

„Við erum að hugsa um ykkur. Við sendum ást okkar og stuðning til Kenny og aðstandenda," segir í tísti frá Arsenal.

Fjölskylda Sansom hefur beðið fjölmiðla um að halda sig fjarri til að virða einkalíf hans og heilbrigðisstarfsfólksins sem annast hann. Mikið var skrifað um Sansom í fjölmiðlum fyrir nokkrum árum þegar hann var heimilislaus og svaf í almenningsgörðum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner