Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 17. maí 2020 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland í dag - Bayern heimsækir Union Berlin
Mynd: Getty Images
Tveir leikir fara fram í efstu deild þýska boltans í dag eftir að sex leikir voru spilaðir fyrir luktum dyrum í gær.

FC Köln og Mainz eigast við í neðri hlutanum en Mainz er aðeins þremur stigum fyrir ofan fallsæti, sex stigum á eftir Köln.

Nýliðar Union Berlin taka svo á móti margföldum Þýskalandsmeisturum og toppliði FC Bayern, sem getur endurnýjað fjögurra stiga forystu á Borussia Dortmund með sigri.

Bayern vann 2-1 er liðin mættust í október.

Leikirnir verða sýndir beint á Viaplay.

Leikir dagsins:
13:30 Köln - Mainz (Viaplay)
16:00 Union Berlin - FC Bayern (Viaplay)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner