Fyrri leikirnir í undanúrslitum Championship-deildarinnar voru frekar lokaðir en þeir enduðu báðir 1-0.
Bournemouth tók á móti Brentford og þar var það Hollendingurinn Arnaut Danjuma sem skoraði eina mark leiksins eftir tíu mínútur í seinni hálfleik.
Þetta var hörkuleikur og þannig var það líka þegar Barnsley og Swansea áttust við.
Þar var það Andre Ayew sem skoraði sigurmarkið seint í fyrri hálfleiknum. Swansea er í frábærum málum þar sem leikurinn í kvöld fór fram á heimavelli Barnsley.
Seinni leikirnir fara fram í vikunni þar sem sigurliðin fá að fara á Wembley í úrslitaleik um sæti í ensku úrvalsdeildinni. Norwich og Watford eru þegar komin upp.
Bournemouth 1 - 0 Brentford
1-0 Arnaut Danjuma ('55 )
Barnsley 0 - 1 Swansea
0-1 Andre Ayew ('39 )
Athugasemdir