„Frábært að landa loks sigri og gera það hér á okkar heimavelli“ sagði Guðni Eiríksson, þjálfari FH, eftir 3-1 sigur gegn Keflavík í Kaplakrika. Hann var sáttur með liðið en fyrir leikinn voru FH-ingar aðeins með eitt stig.
Lestu um leikinn: FH 3 - 1 Keflavík
„Bara mjög kærkomið, góður leikur og leikmenn unnu vel fyrir þessu“ sagði hann svo en FH-ingar mættu svo sannarlega klárar til leiks í dag og voru komnar í 2-0 eftir átta mínútur.
„Ef að hausinn er skrúfaður rétt á, þú mætir tilbúinn til leiks andlega og tilbúinn til þess að berjast fyrir sigri að þá getur svona frammistaða látið ljós sitt skína“ sagði hann aðspurður hvað það var sem small loksins hjá þeim í þessum leik.
Hvað þýða þessi þrjú stig fyrir FH?
„Bara allt. Besta deildin er ansi djúpt vatn, við erum ekki með kúta og við þurfum að synda. Til þess að synda þarf maður að sækja sigur.“
Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.