Squawka Football á Twitter er síða sem fjallar um fótbolta. Eins og flestar síður er HM í Rússlandi aðalumræðuefnið.
Nú hefur síðan sett fram spurninguna: hver stóð sig best á leikdegi þrjú á heimsmeistaramótinu?
N'Golo Kanté, Peter Schmeichel og Hannes Þór Halldórsson eru tilnefndir en ef einhverjum finnst einhver annar hafa staðið sig best er beðið um að viðkomandi svari tístinu og segi þeim hver það er.
Eins og flestir vita þá varði Hannes Þór víti frá Lionel Messi auk þess að eiga fleiri mikilvægar vörslur í jafnteflinu gegn Argentínu.
Hægt er að kjósa hér að neðan.
One day. Four games. 🍿
— Squawka Football (@Squawka) June 16, 2018
Who did it best on day three of the #WorldCup ?
Athugasemdir