Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
Ómar Ingi: Eðlilega verður róðurinn þyngri
Siggi Höskulds: Áttum að skora miklu fleiri mörk
Mikael: Ef menn vilja vera áfram í KFA þurfa menn að horfa á þennan leik
Eyþór: Talað um báða titlana frá fyrsta samtali
Marc McAusland: Lífið er gott í ÍR
   sun 17. júní 2018 09:55
Arnar Daði Arnarsson
„Leikurinn í gær kennslubókardæmi hvernig á að verjast''
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmennirnir, Hörður Björgvin, Kári og Raggi Sig í leiknum í gær.
Varnarmennirnir, Hörður Björgvin, Kári og Raggi Sig í leiknum í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Íslands var léttur í bragði eftir æfingu landsliðsins í Gelendzhik í morgun.

Á æfingunni æfðu þeir leikmenn sem lítið eða ekkert spiluðu í jafnteflinu gegn Argentínu í gærkvöldi í Moskvu.

Heimir var hrikalega ánægður með varnarleik íslenska liðsins í leiknum í gær.

„Ég náði nú bara að horfa á fyrri hálfleikinn í flugvélinni. Þetta var góður leikur á margan hátt hjá okkur. Ég er hrikalega sáttur með varnarleikinn hjá okkur, einbeitinguna og agann. Þegar maður hugsar til baka við hverja við vorum að spila, einstaklingsgæðin í þessu liði. Hvernig við vörðumst er algjörlega til fyrirmyndar. Þessi leikur er kennslubókardæmi um það hvernig þú átt að verjast gegn góðu liði, liði sem er stútfullt af hæfileikaríkum leikmönnum. Bæði einn á móti einum og líka hjálpar vörn," sagði Heimir og hélt áfram.

„Þú mátt ekki missa aga eða einbeitingu í eina sekúndu og mér fannst við gera þetta hrikalega vel í gær."

Viðtalið í heild sinni við Heimi má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.


Athugasemdir
banner
banner
banner