Luis Muriel leikmaður Fiorentina mun ekki leika með Kólumbíu á Copa America eftir hnémeiðsli.
Kólumbía sigraði Argentínu á laugardaginn en Muriel fór af velli eftir að hafa leikið aðeins átta mínútur.
Það hefur verið staðfest að hinn 28 ára gamli Muriel mun vera frá í einhverjar vikur en gæti breyst við frekari skoðun.
Muriel er á láni hjá Fiorentina frá Sevilla og hefur verið orðaður við Atalanta en eftir meiðslin greinir Gazetta dello Sport að „ólíklegt" sé að Atalanta taki Muriel.
Muriel skoraði sex mörk í deildinni með Fiorentina í 19 leikjum.
Athugasemdir