Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 17. júní 2022 17:05
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bissouma: Trúi ekki að ég sé að fara spila í Meistaradeildinni
Bissouma í leik gegn Tottenham
Bissouma í leik gegn Tottenham
Mynd: EPA

Tottenham staðfesti kaup á Yves Bissouma frá Brighton í dag en þetta er þriðji leikmaðurinn sem liðið fær til sín á eftir Ivan Perisic og Fraser Forster.


Bissouma var til viðtals hjá Tottenham eftir að hann hafði skrifað undir samning við félagið.

Hann er mjög spenntur að spila með Tottenham og þá sérstaklega að fá tækifæri á því að spila í Meistaradeildinni.

„Hugsaðu þér að heyra Meistaradeildar stefið, tilfinningarnar eru of miklar. Það er draumur fyrir mig að spila í Meistaradeildinni. Þegar ég var ungur man ég eftir því að hafa horft á Meistaradeildina á hverjum degi og ég trúi því ekki að ég sé að fara spila í henni með Tottenham, ég er svo glaður," sagði Bissouma.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner