Sven Botman hefur verið undir smásjá Newcastle síðasta hálfa árið en liðinu mistókst að ganga frá kaupum á honum frá Lille í janúar.
Newcastle endaði á því að fá Dan Burn frá Brighton.
Botman hefur verið orðaður við Newcastle og AC Milan en hann hefur sjálfur tjáð sig um áhuga liðana
„Bæði lið voru góðir kostir fyrir mig. Ég gerir ráð fyrir að taka gott skref á ferlinum í sumar. Allir segja að þetta snúist bara um peninga hjá Newcastle. En þetta er flott verkefni, ef þú soðar hvar Manchester City og PSG byrjuðu," sagði Botman.
„Ég held að það yrði gaman að vera hluti af því, auðvitað er Milan glæsilegt félag líka."
Athugasemdir