Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 17. júní 2022 15:45
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Carragher kveður Mane: Minn uppáhalds leikmaður
Mynd: EPA

Sadio Mane er við það að ganga til liðs við Bayern Munchen en fréttir herma að LIverpool sé búið að samþykkja tilboð í leikmanninn frá þýska félaginu.


Mane gekk til liðs við Liverpool árið 2016 og hefur verið lykilmaður allar götur síðan. Hann tilkynnti hins vegar eftir að tímabilinu lauk í ár að hann vildi leita annað.

Jamie Carragher fyrrum varnarmaður Liverpool sendi Mane kveðju á Twitter með tár í augunum.

„Minn uppáhalds leikmaður Liverpool undanfarin ár, Sadio Mane er loks á förum. Stóð sig alltaf vel og var aldrei meiddur. Titlar og mörk, algjör Liverpool goðsögn. Takk Sadio," skrifaði Carragher.

My favourite player of this era, Sadio Mane finally departs 😢 low maintenance high performance & never injured! Trophies & goals galore, a true Liverpool Legend. Thank you Sadio ❤️


Athugasemdir
banner
banner