Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fös 17. júní 2022 14:47
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Liverpool og Bayern Munchen hafa komist að samkomulagi
Mynd: EPA

Liverpool hefur samþykkt tilboð frá Bayern Munchen í Sadio Mane sem hljóðar uppá 35 milljónir punda.


Það eru sjö milljónum minna en Liverpool vildi fá í upphafi. Talið er að Liverpool fái 27.5 milljónir beint í kassann en Bayern þurfi að borga 5 milljónir eftir því hversu mikið Mane spilar og 2.5 milljónir í viðbót eftir árangri hans og félagsins.

Mane hefur verið einn besti leikmaður Liverpool undanfarin ár en hann gekk til liðs við félagið árið 2016 frá Southampton. Hann var mjög opinn með það eftir tímabilið í ár að hann vildi yfirgefa félagið.

Það varð síðan ljóst eftir að Liverpool gekk frá kaupum á Darwin Nunez að Mane væri á förum.


Athugasemdir
banner
banner
banner