fös 17. júní 2022 12:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Nketiah gerir fimm ára samning við Arsenal
Mynd: EPA
Hinn 23 ára gamli Eddie Nketiah framherji Arsenal hefur skrifað undir nýjan samning við félagið en þetta segir Fabrizio Romano.

Samkvæmt heimildum Romano gerir Nketiah fimm ára samning en hann hafði náð samkomulagi við félagið fyrir nokkrum dögum og þetta verði staðfest síðar í dag.

Nketiah skoraði fimm mörk í 21 leik í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð en liðið á ansi fáa framherja þessa stundina. Pierre-Emerick Aubameyang yfirgaf félagið í upphafi árs og Alexandre Lacazette gekk til liðs við Lyon fyrr í þessum mánuði.

Nketiah er sagður hafa hafnað félögum á Englandi og í Þýskalandi til að vera áfram hjá Arsenal.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner