Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fös 17. júní 2022 11:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Silva hefur tjáð Man City að hann vilji fara til Barcelona
Mynd: EPA

Bernardo Silva er sagður hafa tjáð Mancher City að hann vilji yfirgefa félagið og ganga til liðs við Barcelona. Þetta kemur fram á spænska miðlinum Mundo Deportivo.


Hollenski miðjumaðurinn Frenkie de Jong er mögulega á leið í rauða hluta Manchester borgar og Barcelona er sagt vilja fá Silva til að leysa hann af.

Silva gekk til liðs við Manchester City frá Monaco árið 2017. Hann er með samning hjá City til ársins 2025.

Sagt er að Silva sé með riftunarákvæði í samningi sínum að ef lið kemur með 100 milljón evra tilboð í hann verði City að samþykkja það. Barcelona hefur einmitt sett 100 milljón evra verðmiða á De Jong.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner