Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 17. júlí 2017 12:30
Bergur Tareq Tamimi
Chicharito nálgast West Ham
Mynd: Getty Images
West Ham ætla að fá til sín Javier Hernandez frá Bayer Leverkusen og eru komnir langt á leið með það.

Sky greindi frá þessu.

Launin hans eru talin eiga að vera 140 þúsund pund á viku en West Ham segist ekki vera tilbúnir að bjóða honum svo há laun. Hins vegar vilja þeir bjóða honum góða bónusa spili hann vel.

Verðið á Mexíkananum er talið vera 13 milljónir punda en á undan lék hann með Manchester United og Real Madrid.

Chicharito spilaði 49 leiki fyrir United og skoraði í þeim 37 mörk.


Athugasemdir
banner
banner