Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   þri 17. júlí 2018 10:00
Magnús Már Einarsson
Alderweireld talar um ósanngjarna tíma hjá Tottenham
Toby Alderweireld.
Toby Alderweireld.
Mynd: Getty Images
Toby Alderweireld, varnarmaður Tottenham, segist ekki ennþá vita hvort hann spili áfram með liðinu á komandi tímabili.

Eftir að hafa meiðst snemma á tímabilinu var Alderweireld mikið á bekknum á meðan Jan Vertonghen og Davinson Sanchez voru í hjarta varnarinnar hjá Tottenham. Alderweireld, sem á ár eftir af samningi sínum, átti gott HM með landsliði Belgíu.

„Ég var mjög einbeittur fyrir þetta mót. Ég vildi sanna eitthvað fyrir sjálfan mig. Ég vildi sýna að kaflinn fyrir mót, þar sem ég spilaði ekki af einhverri ástæðu, var ósanngjarn. Ég vildi sýna að ég er ennþá sami Toby og í nóvember," sagði Alderweireld.

Í sumar hefur Alderweireld verið orðaður við Chelsea, Manchester og PSG. „Ég veit ekki neitt. Í höfði mínu er ég á leið aftur til Tottenham. Við sjáum til," sagði Alderweireld.
Athugasemdir
banner
banner
banner