„Þegar þettar er búið að vera svona lengi, búin að tapa svona mörgum leikjum í röð, kemur smá hristingur í sjálfstraustið. Fólk missir smá einbeitingu,“ sagði Bojana Besic, þjálfari KR, um mörkin tvö sem lið hennar fékk á sig í 3-2 sigurleik á ÍBV í kvöld.
Lestu um leikinn: KR 3 - 2 ÍBV
Spurð um hvað hún hefði sagt við liðið í hálfleik, þegar þær voru 0-1 undir sagði hún: „Við reyndum bara á halda okkur við leikplanið, við myntum bara nokkra punkta og stelpurnar kláruðu með það.“
Aðspurð um mögulegar styrkingar á hópnum sagði hún: „Við erum að skoða möguleika en það kemur allt í ljós.“
Athugasemdir