Aðspurð um fyrstu viðbrögð eftir leik sagði Halla Marinósdóttir, leikmaður FH, úrslit kvöldsins svekkjandi.
Lestu um leikinn: FH 1 - 3 HK/Víkingur
„Mér fannst við eiga fyrri hálfleik og við náðum að setja eitt mark á þær en svo fáum við á okkur mark rétt fyrir lok fyrri hálfleiks og mér fannst við eftir það bara ekki spila okkar bolta,".
Um stöðu þeirra í deildinni sagði Halla að þær væru vissulega í slæmri stöðu. „Við gleymum þessum leik bara strax í dag og tökum bara einn leik fyrir í einu og mætum gríðarlega gíraðar í næsta leik," sagði Halla.
Meira úr viðtalinu í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir