Heimir Hallgrímsson, fráfarandi landsliðsþjálfari Íslands, segist hafa fengið fyrirspurnir erlendis frá. Heimir tilkynnti í dag að hann sé hættur sem landsliðsþjálfari eftir sjö ára starf hjá KSÍ.
„Það hafa komið einhverjar fyrirspurnir en ekkert sem hefur áhrif á þessa ákvörðun," sagði Heimir á fréttamannafundi á Hótel Nordica í dag.
Heimir segir að um sé að ræða bæði fyrirspurnir frá félags og landsliiðum en hann ætlar ekki að stökkva skyndilega í nýtt starf.
„Ég hef alltaf sagt að ég hef áhuga einhverntímann á að láta það reyna að fara erlendis. Alveg sama hvað það verður þá tel ég að ég þurfi undirbúningstímabil."
Hér að neðan má horfa á fréttamannafund Heimis í heild.
Athugasemdir