Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 17. júlí 2018 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Jorge Mendes: Núna getur Juventus unnið Meistaradeildina
Mynd: Getty Images
Jorge Mendes, umboðsmaður Cristiano Ronaldo, er ánægður með félagaskipti skjólstæðings sins til Juventus.

Mendes hefur mikla trú á sínum manni þrátt fyrir að hann sé orðinn 33 ára gamall. Mendes segir Ronaldo vera besta knattspyrnumann sögunnar og býst við að hann verði sá besti til að hafa spilað fyrir Juventus.

„Hann er besti leikmaður í sögu Manchester United," sagði Mendes við Sky Italia.

„Hann er einnig besti leikmaður í sögu Real og hann verður besti leikmaður í sögu Juventus.

„Ég held að Juventus geti loksins unnið Meistaradeildina með Cristiano innanborðs. Hann er besti leikmaður sögunnar."

Athugasemdir
banner
banner
banner