Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 17. júlí 2018 09:37
Magnús Már Einarsson
Maradona kynntur til starfa með látum í Hvíta-Rússlandi
Maradona kynntur til leiks.
Maradona kynntur til leiks.
Mynd: Twitter
Argentínska goðsögnin Diego Maradona lék á als oddi í Hvíta-Rússlandi í gær en hann var þá kynntur sem nýr formaður Dinamo Brest.

Maradona var á HM í Rússlandi þar sem hann vakti mikla athygli í stúkunni.

Hann samþykkti í vor að gerast formaður Dinamo Brest og í gær mætti hann til Hvíta-Rússlands.

Maradona fékk svakalega kynningu hjá félaginu en hann var keyrður um heimavöll Brest á risa bíl auk þess sem hann fékk hring að gjöf frá félaginu.

Brest er í 6. sæti í úrvalsdeildinni í Hvíta-Rússlandi en félagið vonar að Maradona geti hjálpað til við að koma liðinu í toppbaráttu.

Athugasemdir
banner
banner
banner