Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 17. júlí 2018 21:30
Ingólfur Páll Ingólfsson
Mourinho þakkar Blind fyrir tíma hans hjá United
Blind skiptir aftur um treyju og er mættur til Ajax.
Blind skiptir aftur um treyju og er mættur til Ajax.
Mynd: Getty Images
Líkt og við greindum frá fyrr í dag er Daley Blind genginn til liðs við Ajax á nýjan leik eftir fjögur ár hjá Manchester United.

Í kjölfar félagsskiptanna hefur Jose Mourinho þakkað Blind fyrir tíma sinn hjá félaginu og hrósað leikmanninum fyrir að sínu fagmennsku.

Mig langar að segja takk kærlega til Daley Blind fyrir allt sem hann gerði fyrir klúbbinn síðan hann gekk til liðs við félagið árið 2014. Ég verð að segja að á 18 árum í stjórnun er Daley einn af þeim faglegustu leikmönnum, bæði innan sem utan vallar sem ég fengið að þjálfa,” sagði Mourinho.

Mig langar til þess að nýta tækifærið og óska honum alls hins besta er hann gengur til liðs við uppeldisfélag sitt, Ajax og þakka honum fyrir skuldbindingu hans síðustu tvö tímabil.”

Blind spilaði 141 leik fyrir rauðu djöflana og var meðal annars frábær í úrslitaleik Evrópudeildarinnar sem United sigraði árið 2017 er liðið mætti uppeldisfélagi leikmannsins, Ajax.
Athugasemdir
banner
banner
banner