Það hefur verið um fátt rætt á Íslandi í dag annað en komandi landsliðsþjálfaraskipti. Þau hafa einnig verið til umræðu í Noregi en undirritaður spurði Ólaf Jóhannesson, fyrrum landsliðsþjálfara, um þau tíðindi að Heimir Hallgrímsson væri hættur sem þjálfari Íslands.
„Heimir hefur gert frábæra hluti með þetta íslenska landslið og það hefði verið best fyrir alla ef hann hefði haldið áfram... nema hann sjálfan greinilega," sagði Ólafur sem er greinilega ekki sammála Heimi í því að landsliðshópurinn hefði gott af nýrri rödd.
„Það koma nýir tímar með nýjum mönnum og það verður mjög spennandi að sjá hver tekur við. Það verður fyrst og fremst vandasamt verk fyrir hann að fara í spor þeirra manna sem hafa verið með liðið, ég held að það verði mjög erfitt."
Getur hann séð fyrir sér að næsti landsliðsþjálfari verði íslenskur?
„Ég veit það ekki. Það fer eitthvað ferli í gang og mér skilst að bæði Íslendingar og útlendingar verði þar til skoðunar. Það verður spennandi að sjá hver tekur við þessu," segir Ólafur.

Óli Jó, fyrrum landsliðsþjálfari, um tíðindi dagsins í íslenskum fótbolta. "Verður vandasamt að koma inn í þetta starf" #fotboltinet pic.twitter.com/JS85piruXn
— Fotbolti.net (@Fotboltinet) July 17, 2018
Ólafur er að búa sína menn í Val undir Evrópuleik gegn Rosenborg á morgun. Í liðinu er landsliðsbakvörðurinn Birkir Már Sævarsson sem einnig fékk spurningu um tíðindi dagsins en svar hans má sjá hér að neðan.
"Leiðinlegt að Heimir skuli vera hættur" segir landsliðsbakvörðurinn Birkir Már Sævarsson. #fotboltinet pic.twitter.com/wybC01Zpav

Athugasemdir