mið 17. júlí 2019 16:52
Magnús Már Einarsson
Byrjunarlið Vals gegn Maribor: Fimm breytingar
Úr fyrri leiknum í síðustu viku.
Úr fyrri leiknum í síðustu viku.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Maribor í síðari leik liðanna í fyrstu umferð Meistaradeildarinnar.

Maribor vann fyrri leikinn örugglega 3-0 og er í góðri stöðu fyrir leik kvöldsins. Óli Jó gerir fimm breytingar á liði Vals.

Ívar Örn Jónsson fær tækifæri í byrjunarliði Vals í kvöld, Birkir Már Sævarsson snýr aftur í byrjunarliðið eftir meiðsli og þeir Einar Karl Ingvarsson, Kaj Leó í Bartalsstovu og Orri Sigurður Ómarsson koma allri inn.

Út fara þeir Sebastian Hedlund, Sigurður Egill Lárusson, Lasse Petry, Bjarni Ólafur Eiríksson og Ólafur Karl Finsen.

Byrjunarlið Vals:
1. Hannes Þór Halldórsson (m)
2. Birkir Már Sævarsson
4. Einar Karl Ingvarsson
7. Haukur Páll Sigurðsson (f)
9. Patrick Pedersen
10. Kristinn Freyr Sigurðsson
17. Andri Adolphsson
20. Orri Sigurður Ómarsson
21. Bjarni Ólafur Eiríksson
23. Eiður Aron Sigurbjörnsson
77. Kaj Leó í Bartalsstovu
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner