Fimm leikir eru á dagskrá í 4. deild karla í kvöld en ÍH fær Hvíta riddarann í heimsókn.
Hvíti riddarinn er í toppbaráttu í B-riðlinum en liðið er með 25 stig á meðan ÍH er með 9 stig.
KB og KM mætast þá í sama riðli en KB er með 12 stig á meðan KM hefur aðeins náð í 6 stig í sumar.
Í C-riðlinum mætast Léttir og Berserkir í miðjumoðslag. Berserkir eru með 14 stig en Léttir sæti neðar með 12 stig. Þá eru tveir leikir í D-riðlinum en eitt allra slakasta lið landsins, Kóngarnir, spila gegn Ægi sem eru í toppbaráttu. Kóngarnir hafa fengið á sig 94 mörk í 8 leikjum á meðan Ægismenn hafa skorað 32 mörk og fengið aðeins á sig 5.
Leikir dagsins:
4. deild karla - B-riðill - 4. deild karla
20:00 KB-KM (Leiknisvöllur)
20:00 ÍH-Hvíti riddarinn (Ásvellir)
4. deild karla - C-riðill - 4. deild karla
20:00 Berserkir-Léttir (Víkingsvöllur)
4. deild karla - D-riðill - 4. deild karla
20:00 Kóngarnir-Ægir (Þróttarvöllur)
20:30 Kría-KFR (Vivaldivöllurinn)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir