Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 17. júlí 2019 18:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Myndband: Lukkudýr Man Utd ögraði stuðningsmönnum Leeds
Mynd: Getty Images
Manchester United mætti í dag Leeds United í æfingaleik í Ástralíu.

Manchester United sigraði leikinn 4-0.

Fred the Red, lukkudýr Manchester United, ákvað að ögra aðeins stuðningsmönnum Leeds og sýndi þeim afturendann á sér við litla hrifningu Leedsara eins og sjá má í myndbandinu hér að neðan.

Manchester United og Leeds United hafa eldað grátt silfur saman í gegnum tíðina en þó farið töluvert minna fyrir rígnum á milli félaganna vegna fjarveru Leeds úr efstu deild.

Stuðningsmenn Leeds tóku t.a.m. afskaplega illa í félagaskipti Alan Smith til Man Utd á sínum tíma og þá voru ekki allir hrifnir af því þegar Eric Cantona gekk í raðir Rauðu Djöflanna á tíunda áratugi síðustu aldar.



Athugasemdir
banner
banner
banner