Fjórir leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi og voru tvö mörk skoruð í hverjum leik.
Þau er hægt að sjá hér fyrir neðan, þar sem fyrstu tvö myndböndin eru af sigrum Manchester United og Leicester City gegn Crystal Palace og Sheffield United.
Bæði lið unnu sína leiki 2-0 og sýndi Marcus Rashford magnaða takta í báðum mörkum Rauðu djöflanna. Í fyrra markinu lék Rashford á vörn og markvörð Palace með einfaldri gabbhreyfingu og í því seinna byrjaði hann sóknina á því að labba framhjá þremur andstæðingum og endaði á að leggja upp mark fyrir Anthony Martial.
Þar fyrir neðan má svo sjá helstu atvik úr jafnteflisleikjum Everton gegn Aston Villa og Brighton gegn Southampton.
Athugasemdir