Eins og flestir vita tapaði enska landsliðið gegn Ítalíu í úrslitaleik EM í sumar.
Ensku landsliðsmennirnir eru nú í kærkomnu fríi en það byrtist skemmtilegt myndband á Twitter þar sem nokkrir leikmenn sungu hástöfum lagið Sweet Caroline.
Þar var fremstur í flokki Kyle Walker varnarmaður Manchester City.
Þetta vakti mikla athygli stuðningsmanna en flestir höfðu gaman af þessu og fannst þeir eiga skilið að sleppa sér aðeins eftir langt og strangt tímabil.
Myndbandið má sjá hér að neðan.
Go on, lads 🏴❤️ pic.twitter.com/3e3j0nOVSu
— FourFourTweet (@FourFourTweet) July 17, 2021
Athugasemdir