Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 17. júlí 2021 14:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Haaland: Sárt að Sancho sé farinn
Félagarnir
Félagarnir
Mynd: EPA
Jadon Sancho gekk til liðs við Manchester United á dögunum en hann kemur til liðsins frá Dortmund í Þýskalandi.

Erling Haaland, einn besti framherji heims í dag er leikmaður Dortmund. Hann sagði í viðtali að hann muni sakna Sancho.

„Auðvitað er það sárt að hann sé farinn en svona er þetta, svona er fótboltinn. Þú veist aldrei hvað gerist. Mér finnst að það séu fullt af öðrum góðum leikmönnum hér sem ég næ vel saman við og það getur orðið enn betra," sagði Haaland og bætti við:

„Við sjáum til hverjum ég næ best saman við"

Haaland er einn eftirsóttasti leikmaður heims en hann hefur meðal annars verið orðaður við Chelsea, spurning hvort hann verði leikmaður Dortmund í lok sumars.
Athugasemdir
banner
banner
banner